Samtökin '78 eru hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenders fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transgender fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi. Félagið vinnur að þessum markmiðum eftir þeim leiðum sem árangursríkastar þykja hverju sinni, svo sem með fræðslustarfi í atvinnulífi, skólakerfi; á vettvangi löggjafarvalds og í fjölmiðlum.
Norðurlandahópur Samtakana '78 er staðsettur á Akureyri og er tilgangur hópsins að samkynhneigt, tvíkynhneigt og transgender fólk á Norðurlandi og Akureyri geti hist, rætt saman og stutt hvort annað. Við erum líka með jafningjafræðslu fyrir grunn- og framhaldsskóla á landsbyggðinni og ýmiskonar fræðslu og stuðningsstarf á Akureyri.