Um Okkur

  • Nafn: Samtökin78Norðurlandi
  • Netfang: samtokin78nordurlandi@gmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Heimilisfang: Rósenborg
  • Um mig: S'78N er Norðurlandahópur Samtakanna 78 á Íslandi. S'78N stuðnings- og fræðslusamtök fyrir allt hinsegin fólk á Norðurlandi. Markmið þeirra er að vera til stuðnings fyrir fólk á Akureyri ásamt því að auka fræðslu um hinsegin málefni á Norðurlandi. S'78N eru ekki með neitt sérstakt aldurstakmark og geta allir leitað á fundi til þeirra. S'78N hittist alla miðvikudaga í Húsinu, Rósenborg (4. hæð) kl. 20:00-22:00.

Innskráningar kubbur

Fundur miðvikudaginn 25. ágúst.

22. ágúst 2010 klukkan 22:38
Sæl hinsegin rjómabollurnar mínar,

Við erum komin með nýtt logo eins og má sjá á síðunnu okkar sem er frekar hipp og kúl, verð ég að segja.

Allavega, á næsta fundi ætluðum við að fara yfir nýja fyrirlesturinn okkar fyrir jafningarfræðslu og fara yfir hverjir munu vera að hjálpa með það í vetur og vor. Þar sem við höfum fengið ríflegan styrk til fræðslustarfa ætlum við hiklaust að nota það og vera mjög virk í fræðslunni.

Einnig ætlum við að skipuleggja bíóstyrktarkvöld sem myndi verða á fundinum eftir næsta, þannig að endilega mætið sem flest. Einnig höfum við fengið leyfi til að selja nammi og fleira á Akureyri Rokkar (sem verður í september) í Húsinu í staðinn fyrir að leggja þeim lið í dyravörslu, sem ætti að vera lítið mál. ;)

Allavega, hittumst hýr á næsta fundi!

P.s. Það verður bangsaþema þannig að allir að koma með uppáhalds bangsann sinn!

Kær kveðja,
Ugla Stefanía,
Formaður.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Tilkynningar

Fundir

Miðvikudagurinn 25. ágúst - Jafningarfræðslufundur og skipulagning bíóstyrktarkvölds.

Miðvikudagurinn 1. sept. - Bíóstyrkarkvöld.

Könnun

Hvað vilt þú hafa á næsta fundi?