Minningarfundur, 20. október.
19. október 2010 klukkan 14:58
Eins og þið hafið flest tekið eftir þá er miðvikudagurinn 20. október tileinkaður strákunum sem fyrirfóru sér vegna einelti sem þeir lentu í vegna kynhneigðar sinnar. Þess vegna ætlum við að hafa smá minningarfund og kveikja á kertum. Svo ætlum við að spjalla svolitið um allt og ekkert og hafa það huggulegt. Endilega látið ganga á Facebook að sem flestir eigi að koma með eitthvað fjólublátt. Það er líka hægt að finna atburðinn inn á síðunni okkar á Facebook og joina þar (S'78N). Það er nauðsynlegt að sýna þeim samhug og hugsa til þeirra. Allir velkomnir að koma til okkar á þennan minningarfund, samtakameðlimir sem og aðstandendur eða vinir. :)
Vonandi mæta sem flestir. :)
Kær kveðja,
Ugla.... Nánar
Vonandi mæta sem flestir. :)
Kær kveðja,
Ugla.... Nánar
Samtakafundur miðvikudaginn 8. september!
05. september 2010 klukkan 23:14
Sæl og blessuð hinsegin börnin mín,
Á næsta fundi ætlum við bara að hafa þetta frekar krúttlegt og rólegt. Þurfum að fara aðeins yfir hverjir getað verið að selja nammi á Akureyri Rokkar og fleira. Svo þurfum við líka að skoða boð á smá sleepover fyrir sunnan 25. september sem okkur var boðið í af Ungliðunum fyrir sunnan. Þurfum að fara yfir nokkrar reglur varðandi það og hverjir ætla og mega fara og svoleiðis. Svo spilum við öru...gglega bara eitthvað skemmtilegt.
Allavega, endilega komið svo við getum planað þetta allt með sem flestum. :)
Hýr kveðja,
Ugla.
Bíóstyrktarkvöld!
29. ágúst 2010 klukkan 14:59
Sæl og blessuð!
Við hjá S'78N ætlum að halda bíóstyrkarkvöld þar sem öllum (vinir, vandamenn og hver sem er) er boðið að koma og kíkja á nokkrar myndir með okkur. Við verðum með gos og nammi á staðnum fyrir þá sem vilja. :)
Myndir verða sýndar bæði inní sjónvarpsherbergi og inní salnum í Húsinu. Myndirnar sem verða sýndar eru:
...
SALUR
17:00 - Guffagrín.
18:30 - Paranormal Activity.
20:10 - Alice in Wonderland.
SJÓNVARPSHERBERGI
17:00 - An American Haunting.
18:30 - Kung Fu Panda.
20:10 - 1408.
Endilega bjóðið sem flestum að koma og kúrum yfir nokkrum myndum saman. :D

Fundur miðvikudaginn 25. ágúst.
22. ágúst 2010 klukkan 22:38
Sæl hinsegin rjómabollurnar mínar,
Við erum komin með nýtt logo eins og má sjá á síðunnu okkar sem er frekar hipp og kúl, verð ég að segja.
Allavega, á næsta fundi ætluðum við að fara yfir nýja fyrirlesturinn okkar fyrir jafningarfræðslu og fara yfir hverjir munu vera að hjálpa með það í vetur og vor. Þar sem við höfum fengið ríflegan styrk til fræðslustarfa ætlum við hiklaust að nota það og vera mjög virk í fræðslunni.
Einnig ætlum við að skipuleggja bíóstyrktarkvöld sem myndi verða á fundinum eftir næsta, þannig að endilega mætið sem flest. Einnig höfum við fengið leyfi til að selja nammi og fleira á Akureyri Rokkar (sem verður í september) í Húsinu í staðinn fyrir að leggja þeim lið í dyravörslu, sem ætti að vera lítið mál. ;)
Allavega, hittumst hýr á næsta fundi!
P.s. Það verður bangsaþema þannig að allir að koma með uppáhalds bangsann sinn!
Kær kveðja,
Ugla Stefanía,
Formaður.